16.10.2008 | 09:48
letidagur - síminn
Þá er komið að letideginum.
Tókst að gera allt sem ég hafði ætlað mér í gær og rúmlega það... 2 dagar af dugnaði þýðir einn í leti.. sá er í dag.
Í gærkvöldi fór ég og hitti Jónu, Drífu Dröfn og Ingunni Berglindi... dágott kvöld enda langt síðan við höfum allar hist. Ýmislegt rætt og rifjað upp og stefnt á annan hitting í næsta mánuði.
En þá að símafyrirtækinu okkar Símanum.
Ég fór í fyrradag og vildi breyta símanúmerinu mínu í frelsi, þar sem ég tala svo lítið í símann og meirihluti reikningsins er mánaðargjald. Ekkert mál að breyta því. Mér sagt að þetta gerist líklega bara "á morgun" (s.s. í gær) og ég fái sent sms. OK flott.! Nokkrum klukkutímum síðar er ég orðin símasambandslaus, get ekki tekið við símtölum og ekki hringt (nema í þjónustuver og 112). Svo líður gærdagurinn og ekkert gerist enn... ég ákvað því í morgun að bíða ekki í allan dag eftir að eitthvað gerist og hringi í Málsvarann 1441. Þá er ég allt í einu skráð í frelsi og boðin velkomin! Þá var ekkert eftir nema fylla á frelsið og málið klárt!
HVAR VAR ÞETTA HELV..... SMS SEM ÉG ÁTTI AÐ FÁ ? Hefði sem sagt sennilega ekki þurft að vera símalaus í nokkra stund ef mér hefði verið sagt hvað ég ætti að gera þegar síminn myndi "detta út".
Alveg merkilegt hvað þetta blessaða fyrirtæki (eins og mörg önnur) geta ekki gefið almenninlegar upplýsingar.
En hvað um það.. ég er allavega komin í símasamband aftur og hætt að styrkja símann um rúmlega 700 krónur aukalega á mánuði, fyrir það eitt að eiga símanúmer
Um bloggið
Drífa Magnúsdóttir
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggarar
- Bengta Æltar að vera 18 þangað til hún deyr
- Eyrún, Eva og Helgi Þríeyki í bakpokaferðalagi
- Halli frændi Fjallagarpur og góður drengur
- Jóhanna Arnórsdóttir Frænka mín
- Magni Dáðadrengur
- Sigga og Ingó Aðskilin hjón
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.